So long and thanks for all the fish...........................: 07/01/2007 - 08/01/2007

So long and thanks for all the fish...........................

laugardagur, júlí 21, 2007

Tvær vinnuvikur búnar.......... finnst ennþá skrýtið að vera farin að vinna aftur..........
en samt líka gaman.......... sérstaklega þar sem ég er að leysa af á skrifstofunni og er að læra alveg nýtt starf..... verð að viðurkenna að ég var soldið stressuð fyrst........ var pínu eins og hauslaus hæna einn daginn þegar ég var on my own vegna veikinda........ en þetta gengur vonandi bara vel..........
Annars er ekkert að frétta................. gengur allt bara sinn vanagang......... skvísan komin með þriðju tönnina....... sem að skýrir afhverju hún er búin að vera svona pirruð og óróleg undanfarið......... Bjartur er líka búinn að vera skrýtinn undanfarið...... er alveg hættur að ryksuga matinn sinn upp og skilur oft eftir í skálinni............ borðar eiginlega bara 1 sinni á dag í staðinn fyrir 2.......... eða borðar bara matinn sinn 1 sinni á dag..... og svo nammi og matinn hennar Elísu oft á dag......... hann er svo duglegur þessi elska að þrífa upp matinn sem sullast út um allt........ alveg æðislegt að hafa svona sjálfvirka ryksugu/moppu sem þrífur upp matarleifar....................

þriðjudagur, júlí 10, 2007

Jæja þá eru tveir vinnudagar búnir......... ferlega skrýtið að mæta aftur eftir 7 mánuði......... Elísa virðist finna mun minna fyrir þessu en ég...... bara svaka stuð hjá henni í pössun hjá ömmu og afa......... í dag var ég svo komin heim um hálf tvö og lagði mig með Elísu....... síðan fórum við í pottinn og vorum þar í yfir klukkutíma að sulla og leika..... rosa gaman......... ekki mikið pláss í pottinum samt fyrir öllu dótinu sem amman og afinn keyptu úti á Tyrklandi.............

föstudagur, júlí 06, 2007

My baby beat me up..!!

Já nú er mín öll aum og útklóruð..... elskulega dóttir mín gekk í skrokk á mér í gær..... já það var bara hnefi í nefið, snuð í kinnina, hártog, klór og klíp..... vantar greinilega eitthvað upp á uppeldið á þessu heimili....................
Í öðrum fréttum er það helst að okkur grunar að geimverur hafi rænt líkama hundsins okkar.... fórum nefnilega að versla um daginn og Bjartur beið í bílnum.... þegar við komum út eru þrír hundar á gangstéttinni fyrir framan bílinn okkar og einn hundur að gelta í bílnum við hliðina..... en það heyrðist ekki múkk í Bjarti! sem eins og allir vita sem hafa hitt hann er mjööööög skrítið...... fékk svona nettan Invasion of the body snatchers fíling.......
Annars er mest lítið búið að gerast.... bara hanga úti í sólinni og i heita pottinum með Elísu........ ásamt því að éta ofnæmislyf eins og ópal.... erum bæði búin að vera hrikalega slæm af frjókornaofnæmi og bara bíðum eftir rigningu........ ofdekra Skugga og Birtu þar sem ma og pa eru úti á Tyrklandi.... þau koma einmitt heim í nótt og eru víst búin að kaupa heilan helling handa Elísu littlu , te handa Ragnheiði og handa okkur ásamt einhverju fleiru......
Svo byrjar vinnan á mánudaginn..... fæðingarorlofið búið og barnið sent í pössun til ömmu sinnar.....