já sumir dagar eru viðburðaríkari en aðrir........
byrjaði morguninn extra snemma svo ég gæti skutlað kallinum..... mæti snemma í vinnuna og kemst þá að því að það var tilgangslaust fyrir hann að ætla í vinnuna.... þannig að ég vaknaði extra snemma fyrir ekki neitt og hann endaði með því að labba strax heim aftur....
svo hélt ég meirihluta dagsins að ég ætti að vinna til 6 en komst svo að því að það er næsta mánudag... oh well var samt í vinnunni til rétt yfir 5.....
svo þegar ég kem heim eru útidyrnar opnar og megn stækja kemur úr íbúðinni..... pabbi inni í þvottahúsi að setja tuskur í bleyti og kallinn lokaður inni í stofu.... það kviknaði nefnilega í á meðan ég var í vinnunni.... réttara væri kannski að segja að pabbi kveikti í..... já hann pabbi minn var að vinna í eldhúsinu mínu og þurfti að færa eldavélina aðeins.... svo þegar hann færði hana tilbaka rak hann sig í og kveikti á einni hellunni..... og að sjálfsögðu var hann búinn að setja plast uppþvottagrindina mína ofan á eldavélina og að sjálfsögðu byrjaði hún að bráðna og solleiðis.... pabbi ákvað einmitt að taka sér smá hlé eftir að hann óvart kveikti undir hellunni....... eftir smá stund finnur kallinn reykjalykt og fer að athuga málið..... þá logar náttla í plastinu og einu viðarskurðarbretti......
þeir mega þó eiga það að það var búið að taka rosa vel til þegar ég kom heim og allt opið upp á gátt.... eins og er enn þar sem það er enn megn bruna plast lykt hérna.... og þess vegna sitjum við hérna frosin í tvennum peysum og ullarsokkum.....
held ég hefði bara átt að tilkynna mig veika í dag svei mér þá......