Sem betur fer vinn ég bara til 1...... ég held ég hefði ekki getað þolað bjarnastaðabeljurnar og gamla nóa lengur...... og ég hefði ekki haft gott af meira nammi heldur...............
En ég var líka heppin að Ragnheiður hleypti mér í langt kaffi þannig að ég gat farið upp og falið mig í smá tíma og drukkið soldið mikið kaffi sem gerði mér kleyft að takast á við Öskudaginn.... setti meira að segja upp bleika hárkollu í tilefni dagsins.... það var alveg rétt sem
Ragnheiður sagði í morgun að við myndum komast í gegn um daginn með smá geðlyfjum og fullt af kaffi... virkaði allavega fyrir mig.....
Það er ekki enn búið að gera við dekkið mitt... kom í ljós í dag að það er felgan sem er ekki í lagi..... ef það er ekki hægt að laga hana þá verð ég að kaupa nýjar..... sem ég hef ekki efni á akkúrat núna... en jæja....
kannski kemur eitthvað inn í Vöku..... á viðráðanlegu verði...... sem fyrir mig er ekki mjög hátt........
