So long and thanks for all the fish...........................: 11/01/2004 - 12/01/2004

So long and thanks for all the fish...........................

mánudagur, nóvember 08, 2004

Hmm.....

Ég: ....... góðan dag
Viðskiptavinur: halló það er alltaf verið að hringja í mig úr þessu númeri!
Ég: Já (Veit ekki alveg hvað ég á að gera í því....)
Viðskiptavinur: Það er búið að hringja tvisvar núna
Ég: Ég veit því miður ekki hver hefur verið að hringja...
Viðskiptavinur: Geturu ekki komist að því fyrir mig?
Ég: Því miður, það verður ábyggilega bara hringt aftur..
Viðskiptavinur: Ég meina geturu ekki komist að því? Ég get ekkert beðið eftir því að það verði hringt aftur... ég er bara með símann eftir 7 og smá í hádeginu.
Ég: Því miður, það vinna um hundrað manns hérna og engin leið fyrir mig að sjá hver hefur verið að hringja.
Viðskiptavinur: Nei nú ertu að ýkja (Eins og það geti ómögulega verið það margir og ég sé bara að ljúga)
Ég: Nei (Þögn.....)

Ég er búin að komast að því að þögn er besta vopnið gegn leiðinlegum viðskiptavinum.... bara að segja það sem þarf og þegja síðan þó fólk röfli.... ekkert sem maður getur bætt við hvort sem er...
plús það að sumt fólk verður ennþá meira pirrað ef maður þegir og ég verð að viðurkenna að ég hef alveg rosalega gaman af því stundum..........