So long and thanks for all the fish...........................: 06/01/2007 - 07/01/2007

So long and thanks for all the fish...........................

fimmtudagur, júní 14, 2007

Klaufi.is

Ég heiti Erla og ég er klaufi. Við Elísa fórum í heimsókn til Elínar og Gutta í gær og í dag er ég með þennan fína marblett við augnbeinið. Já snillingurinn ég skellti bílhurðinni í andlitið á mér þegar við vorum á heimleið. Setti barnið inn í bílinn. Opnaði svo hurðina til að setjast sjálf inn, var eitthvað utan við mig eins og alltaf og skellti hurðinni í andlitið á mér. Einmitt ég skellti hurð í andlitið á mér..... hljómar álíka trúverðugt og 'ég labbaði á hurð'...... alveg satt samt.....
Ekki tók svo betra við þegar heim kom, ég datt næstum um hjólið mitt sem stendur á ganginum vegna plássleysis í geymslunni, skildi barnið eftir á leikteppinu meðan ég hljóp til þess að fara til dyra uppi, búin að gleyma því að þó svo frændinn hafi setið yfir henni þá er hún hálffeimin við hann og grét auðvitað eins og ljón, var ekki nógu fljót að loka hurðinni fram á gang þannig að Bjarturinn náði að elta mig og í kapphlaupinu við að komast upp áður en ég næði að loka hurðinni á hann þá húrraði hann niður allar tröppurnar. Ágætt að vita þó að ég er ekki eini klaufinn í fjölskyldunni.....

miðvikudagur, júní 13, 2007

Jæja,
eftir að hafa þjáðst af áralangri bloggleti hef ég ákveðið að reyna að blogga á ný. Sjáum hvað það endist lengi