Þá er búið að fara með
Bjart til læknis.... hann var svo duglegur þessi elska.... hann nefnilega braut eina kló í fyrradag líklega og það er heldur alvarlegra en þegar ég brýt nögl... urhm... en allavega voru klærnar á honum orðnar svaðalega langar og kvikan komin lengst niður vegna þess að fyrrverandi fjölskyldan virðist
aldrei hafa klippt á honum klærnar... og svo gerðist það að það brotnaði kló en sem betur fer blæddi ekki mikið.... læknirinn klippti hana af og snyrti svo allar hinar niður í eðlilega lengd... ekki gott að klippa í kvikuna en þetta er þó betra en að þær brotni og ekkert hægt að brenna fyrir sárin....... hann var voða stilltur greyið... það var settur múll á hann og honum haldið föstum..... hann gafst upp mjög fljótlega og það eina sem hann gerði var að pissa á aðstoðarmanneskjuna sem var að halda honum.... hef sjaldan séð hann svona hræddan.... um leið og þetta var búið límdi hann sig svo á mig og harðneitaði að leyfa mér að setja sig niður.... hann er alltaf eins og engill alls staðar annars staðar en heima hjá sér....
annars er ósköp lítið að gerast hjá mér þessa dagana..... er eiginlega alveg hætt að drekka gos og er eitthvað aðeins í uhm ójafnvægi vegna þess..... er samt búin að standa mig mjög vel.....