So long and thanks for all the fish...........................: 03/01/2004 - 04/01/2004

So long and thanks for all the fish...........................

föstudagur, mars 26, 2004

Mín skellti sér bara í Elko í Skeifunni í gær og keypti sér eitt stykki uppþvottavél! hún er reyndar ennþá í kassanum og verður það eitthvað lengur þar sem það er hvorki pláss fyrir hana né tengt fyrir hana..... en það er allt í lagi.... dugar alveg fyrir mig að dást að kassanum í bili...................

þriðjudagur, mars 23, 2004

það var nú ekki svo slæmur dagur í gær........ mikill hasar, mikil læti og mikið slegist... bara gubbað tvisvar en engin slys..... svo datt allt í dúnalogn um 8 eða 9 leytið... þau voru bara alveg búin á því greyin...
ég fékk líka að fara út að borða í hádeginu með skrifstofunni..... ein vann mat fyrir 10 manns á Ruby Tuesday og ég fékk að vera með.... þurfti bara að betla afleysingu þar sem ég vinn bara til 1 og átti enn að vera að vinna klukkan 12 þegar var farið.... það var fínt að fá smá tilbreytingu og maturinn var bara góður...... síðan brunaði ég til að ná í kallinn (verð að fara að fá hann til að keyra....) skrapp í Góða Hirðinn og keypti fjórar bækur.... fór heim tók aðeins til uppi og loftaði út.... átti í klukkutíma samræðum við kallinn um hvað ætti að vera í matinn ("ég veit það ekki, hvað vilt þú?" gekk svona allan tímann...) hringdi svo í Ragnheiði sem sagði mér að kaupa bara tilbúinn Þykkvarbæjarplokkfisk... sem ég gerði... hann var bara ágætur... samt alltaf betri heimalagaður... hint hint
Ragnheidur kom svo í köku og spjall og svo var farið snemma að sofa með 3 hunda upp í rúmi... síðasta nóttin í bili þar sem þau verða öll þrjú hjá okkur þar sem m og p koma aftur í dag..... Þrátt fyrir öll lætin og vesenið var bara gaman að vera með þau öll þrjú....... en það er samt ekki eins og ég eigi ekki eftir að sjá þau aftur... þar sem þau búa í sama húsi og við erum með allt opið á milli........

mánudagur, mars 22, 2004

Ekki mín helgi.......
heilsan var alls ekki nógu góð á föstudaginn þannig að ég var bara heima að lesa og horfa á vídeó........ meiri hlutinn af deginum fór nú samt í að sinna voffalingunum, þeim leiddist, þau vildu leika, borða, fara út, koma inn, láta klóra sér, einn vildi sofa hinir vildu fá hann til að leika, það var gelt, urrað og slegist.... síðan um kvöldið þegar þau voru búin að fá nóg var hrúgast á mig í sófann....... þegar ég var föst undir hundahrúginni heyrðist mikið blót og ragn innan úr svefnherberginu.... þar hafði fundist klessa í rúminu hans Skugga sem gat ekki verið neitt annað en úrgangur úr Birtu.... blettirnir voru svo út um alla íbúð og eftir athugun komst kallinn að þeirri niðurstöðu að ég hlyti að stigið í skítinn án þess að taka eftir því.... og viti menn ég kíki undir inniskóna og er þá ekki þessi svaka fína klessa þar.... það dugði náttúrulega ekkert annað en að skrúbba skóna og öll gólfin og henda sænginni hans Skugga í þvott....
Laugardagurinn byrjaði svo vel.... vaknaði snemma og ákvað að fara að versla..... kom heim og sá engin "slys" þrátt fyrir að voffalingarnir hafi verið einir heima.... ákveð svo að vera dugleg húsmóðir og baka bananabrauð..... það gekk allt vel og eftir klukkutíma tek ég það út..... lítur mjög vel út og prjónninn kemur út hreinn..... en hvað gerist ekki.... ég tek brauðið úr forminu og sker það..... er ekki helvítið hrátt í miðjunni.....
Sunnudagurinn byrjar líka ágætlega og ég dríf mig í að baka gulrótarköku..... kallinum til mikillar ánægju þá kemur hún ilmandi fín út úr ofninum.... ég set botnanaá borðið til að kólna...... þeir eru látnir vera í klukkutíma þó svo að mikið slef myndist nálægt borðinu (úr hundunum, ekki kallinum)... svo rétt áður en ég ætla að gera kremið heyrist þetta skaðræðis öskur..... hefur þá ekki kallinn komið að Skugga með hálfan tertubotn í munninum........ það var því aðeins hálf kaka sem var á boðstólum í gær..... og eins og það væri ekki nóg þá skildi einhver eftir "gjöf" handa okkur inni í svefnherbergi sem kallinn steig í........ sem sagt skemmtileg helgi hjá okkur.....

þriðjudagur, mars 16, 2004

Nýr harðurdiskur kominn í og helgin fór öll í að ná í forrit og setja þau upp...... það var svo sem ágætt að fá bara nýjan disk og losna við allt draslið sem ég var búin að sanka að mér en ég hefði nú alveg viljað sleppa við að setja allt upp á nýtt... tapaði samt engu mikilvægu þar sem ég er með afrit af flestum skjölum á ferðatölvunni......
kallinum var ekkert voða hress með að ég væri límd við tölvuna og voffalingarnir voru soldið sár yfir að ég ég skyldi varla líta á þau.. Lillibjatt hefndi þó fyrir þau með því að pissa margoft á eina töskuna mína...
Svo var síðasti dagurinn í bili sem ég vinn á tveim stöðum..... verður gott að vera bara búinn að vinna klukkan eitt og geta farið að leika sér eða að sofa..... held ég baki ábyggilega í vikunni fyrst ég verð komin heim um eitt.... er búin að vera að hugsa um banana brauð (með kókos... sorry Ragnheiður) og gulrótarköku heillengi..... skelli kannski í skúffuköku líka í leiðinni....
heilsan er líka öll að koma til... ennþá dofin í höndunum og klaufsk en ég get aftur gengið í hælum! þarf ekki alltaf að vera í strigaskóm núna........

föstudagur, mars 12, 2004

jæja ég er nú aðeins búin að róa mig og búin að skipta um umhverfi.... skiptiborðið í hinni vinnunni er nefnilega yfirleitt miklu rólegra þannig að það er nægur tími til að slaka á........ fyrir mig allavega...
en það er meira hvað fólk getur verið utan við sig..... það fréttist af því í gær að hópur af skólabörnum utan af landi ætlaði að koma og skoða stofnunina en þar sem nýbúið er að tilkynna að enginn hérna tekur að sér hópa þá var þetta soldið gruggugt.... það var sendur út tölvupóstur til allra en þrátt fyrir ýmsar tilgátur kannaðist enginn við þetta... það var jafnvel haldið að kennararnir væru svo kræfir að koma bara án þess að tala við einn eða neinn og því var spenningurinn mikill að sjá hvað myndi gerast (ég veit... en það gerist yfirleitt ekki mikið hérna þannig að það þarf ekki mikið til að skapa spenning) og viti menn hópurinn birtist... þá var víst búið að ræða við einn hérna sem svo lét engann vita og mætir svo ekki einu sinni sjálfir...... já fólk er ótrúlegt

argh... mikið djöfull getur fólk verið ömurlegt!!!
Það ætti ekki að vera svo erfitt að skilja að það er gríðarlegt álag núna og ekki séns að ná í sölumennina í síma... en nei sama fólkið hringir endalaust og byrjar svo að þrasa í mér vegna þess að það er úti landi.... mér kemur það bara andskotann ekkert við... fyrir utan hálvitaskapinn að ætla að kaupa bíl sem það hefur aldrei séð og veit ekkert um í gegnum símann... mér er bara andskotans sama þótt einhver kelling hafi hringt í tvo daga og sé alltaf sagt að það sé ekki hægt að ná í sölumennina.... og hvað með það þótt hún hafi keyrt í bæinn og þegar hún kom hingað hafi þeir allir verið í símanum..... það þýðir bara ekkert að þrasa í mér.... hvað þá að vera með dónaskap... og fyrst hún kom hérna í gær afhverju í andskotanum gekk hún ekki frá þessu þá.... mikið djöfull verð ég fegin þegar þetta verður búið

þriðjudagur, mars 09, 2004

Ég er að passa alla voffalingana mína á meðan m og p eru ekki heima þannig að næstu tvær vikurnar fer ég ekkert nema að drösla þrem hundum með..... sem mér finnst æðislegt en kallinn er ekki eins hrifinn......... eins og núna þegar ég skutlaði honum í skólann... ég byrjaði auðvitað á því að taka fram allar ólirnar og þá byrjar ballið.. "What are you doing that for??? you´ll only be gone for ten minutes... they were alone for five hours today and it didnt kill them... forget it then I´ll just walk.. I´m not getting in that small car with three dogs..... etc etc" Fimm mínútum seinna voru tvær manneskjur og þrír hundar að keyra niður miklubrautina í átt að miðbænum... ég veit ekki til hvers hann er einu sinni að reyna þetta nöldur......
Annars er ég búin að vera voða löt við að blogga.... ég er nefnilega svo hryllilega lengi að vélrita núna.... fingurnir eru bara ekki að hlýða mér frekar en annað.... fór í stuttann göngutúr niður á horn á sunnudagskvöldið... var búin að eyða tíu mínútum í að plata Lillabjatt til að fara í regnkápuna sína... dreg hann svo á rassinum (hann er ekki alveg sáttur við kápuna þó svo mér finnist hann algjör dúlla í henni) niður á horn og finn þá allt í einu þvílíkan sársauka í kálfanum.... bévítans vöðvinn varð eitthvað áttavilltur þannig að ég er búin að haltra síðan.... bara eftir að labba niður á horn... ég er bara ekki að fatta þetta.....spurning um hvort maður ætti að fá eitthvað vöðvaslakandi......... og svo fór harði diskurinn í tölvunni minni...ekki ársgamalt drasl... og ég heyri ábyggilega ekkert um viðgerðina fyrr en kannski á morgun... efa það samt.... fæ örugglega að heyra eftir helgi að hann sé ónýtur... þannig að mánudagur var heldur ekki góður dagur.....
Lánaði svo Ragnheiði myndina Ichi the Killer en hún var ekki alveg að fíla hana... er viss um að það gengur betur á laugardaginn........